Föstudagur, 4. september 2009
Hvaða fallisti skrifaði þessa frétt?
Ég ætla ekki að vera stafsetningar nasisti hérna en það er lágmark að menn sem vinna við að búa til fréttir villuleiti það sem þeir skrifa. Er kreppan búin að taka villuleitina af tölvunum hjá mbl.is?
Eftirfarandi frétt er ekki samboðin fréttamiðli. Og hér er ástæðan:
"Levi Johnston, barnsfaðir Bristol Palin dóttur Sörah Palin fyrrum ríkisstjóra í Alaska og varaforsetaefnis bandarískra repúblíkanaflokksins, staðhæfir í viðtali við tímaritið Vanity Fair að Palin hafi viljað að Bristol leyndi þungun sinni og að hún fengi síðan sjálf að ættleiða barnið. Þetta kemur fram á fréttavef Berlingske Tidende.
Í viðtalinu segir hann einnig að Sarah eigi í raun fátt sameiginlegt með þeirri ímynd sem dregin hafi verið upp af henni í fjölmiðlum. Þannig sé ekki rétt að hún fari á veiðar, eldi góðan mat og sé skipulögð húsmóðir og móðir.
„Heimili Palin-fjölskyldunnar er allt öðruvísi en marir ímynda sér og það var það líka áður en hún var tilnefnd sem varaforsetaefni. Þar fer ekki mikið fyrir uppeldi eða foreldraumsjá. Sarah eldar ekki mat. Todd eldar ekki mat. Börnin gera allt sjálf. Þau elda, þrífa, þvo þvott og sjá um heimanámið sjálf,” segir hann.
„Það var venjan að Bristol hjálpaði yngri systrum sínum við heimanámið á meðan ég skellti kjúklingi eða nautakjöti á grillið,” segir hann.
Johnston bjó með Palin fjölskyldunni á þeim tíma sem kosningabarátta Palin og John McCain, forsetaefnis repbúlíkana stóð sem hæst á síðasta ári. Tripp, sonur hans og Bristol fæddist í desember á síðasta ári og þremur mánuðum síðar sleit hann trúlofun þeirra."
Bæta sig mbl.is
|
„Palin á fátt sameiginlegt með ímyndinni" |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 30. júní 2009
Pabbi. Af hverju búum við ekki á Íslandi?
Þetta hafa líklega mörg börn spurt foreldra sína í gegnum tíðina. Fólk flytur vegna starfa. Fólk flytur vegna tækifæra. Flestir hugsa þó með söknuði til ástkærar fósturjarðarinnar. Fólk flyst ekki af Íslandi vegna þess að það sé slæmt að búa þar. Ja ekki hingað til.
Við erum öll reið út í útrásarvíkingana. Lets face it. Okkur langar alveg ofboðslega að tjarga og fiðra þá. Brenna húsin þeirra og taka alla peningana þeirra, Henda þeim í stóra hrúgu og segja við Þá sem eru okkur reiðir hérna eru peningarnir ykkar. Látið okkur nú í friði. En það á ekkert eftir að gerast strax því þó að á endanum munu þeir flestir enda í fangelsi eða útlægir úr okkar þjóðfélagi þá vitum við öll hvað við erum fljót að gleyma. Og líka hversu innvinklaðir þeir eru í Íslensk stjórnvöld.
Ég meina hvar er Hannes Smárason? Af hverju er ekki komin framsalsbeiðni á hann frá ríkislögreglustjóra?
Nei. Það gerist ekki í bráð hugsa ég.
Samt eins reið eins og við erum út í útrásarvíkingana þá erum við algerlega hneyksluð á stjórnvöldum og eftirlitsstofnunum í öllu þessu fíaskói. Hvaða jólasveinar voru að fylgjast með seinustu 10 árin? Davíð Oddson bla bla bla og allt það. Þetta er eins og vinir mínir í hernum myndu kalla FUBAR (Fucked Up Beyond All Recognition).
Og við vorum reið. Stjórnvöld gerðu ekkert. Davíð var enn rífandi kjaft og fór mikinn um hversu vitlausir allir væru og að hann vissi sko allt um allt. Við þekkjum öll söguna.
Og við urðum gjörsamlega tjúlluð. "vanhæf ríkisstjórn" var öskrað. Táragas og óeirðabúningar. Grjót, egg, Tómatar(eða túmmatar mér er svosem sama), skyr og jógúrt urðu að daglegri sjón. Búsáhaldabyltingin nær hámarki og stjórn er slitið. Loksins!!!
Nú á að gera eitthvað. 82 daga bráðabyrgðarstjórn var sett og nú átti að láta hendur standa fram úr ermum. Og svo gerðist ekkert. En við urðum að vera þolinmóð. Davíð og allt hyskið hans var búið að fokka okkur svo algerlega að ekkert var hægt að gera í fljótu bragði. Ok við settumst og biðum. Og biðum. Og biðum. Og svo komu kosningar. Samstarfsflokkurinn sem sagði ekki orð á meðan Geir Haarde sigldi á kaf í Janúar var nú orðið stærsta pólitíska aflið á landinu. Hinir reiðu réttlátu voru orðnir þriðji stærsti flokkurinn á landinu. Á eftir fólkinu sem fokkaði okkur öllum muniði.
Jæja nú átti sko að vinna fyrir lítilmagnann og slá skjaldborg um heimilin og fullt annað.
Og hvað gerðist. Skattar hækkuðu. Gjöld hækkuðu. Gjaldeyrishöft og hömlur á viðskipti. Og svo í krafti þess að einhver fyrrverandi starfsmaður sem rekinn var með skít og skömm sagði eitthvað við einnhvern sem fannst það vera eitthvað spes þá ákvað velferðar og fjölskylduvæna ríkisstjórnin að semja um einhverja skuld sem samkvæmt flestum við ættum að segja sorry ekki okkar skuld eltiði eigendur bankans. Langflestir eru tilbúnir að láta hana fara fyrir rétt. Og ég held að ég tali fyrir alþjóð þegar ég segi engum langar að borga þetta né vill fólk neitt með þetta hafa.
Menn eru hræddir um að vera kallaðir óreiðufólk? Hvað halda menn að gerist ef einhverntíman á lánstímanum ef við missum af greiðslu? Ja við getum samið... Samið eins og núna? Samið um að láta taka okkur í rassgatið í 15 ár útaf einhverju sem 99% af þjóðinni átti ekkert með?
Hvar ætlar velferðar og fjölskyldu ríkisstjórnin að fá skatt tekjur fyrir þessu? það er opin umræða í þjóðfélaginu hjá ungu fólki að hreinlega fara úr landi. ætlar velferðar ríkistjórnin að taka peninga frá þeim sem ekki geta flúið land? Ellilífeyrisþegum. Öryrkjum? Nei þetta mun liggja á herðum þeirra sem munu ekki fara úr landi. Fólk sem er komið með fjölskyldur og er með vinnu. 15 ár af þrælkun fyrir eitthvað sem er jafn auðvelt að segja nei við og að segja nei við reikningi sem er ekki stílaður á mann en kemur í misgripum.
En velferðar og fjölskyldu ríkisstjórnin vill frekar að sagan endi svona:
Sonurinn: Pabbi. Við erum Íslendingar er það ekki?
Pabbinn: Já við erum Íslendingar.
Sonurinn: Af hverju búum við þá ekki á Íslandi?
Pabbinn: Vegna þess kúturinn minn. Að fólkið sem átti að vernda hagsmuni þína var of upptekið að kenna fyrri stjórn um eitthvað sem gerðist í fortíðinni að það seldi framtíðina þina á íslandi án þess að berjast fyrir henni. Og sem ábyrgt foreldri þá get ég ekki með góðri samvisku gert það sama.
Góðar stundir.
Miðvikudagur, 13. maí 2009
Hvernig er hægt að vera....
Óánægður með eitthvað sem maður velur sjálfur?
Voru það ekki VG sem settu sinn lista saman?
Ef ung grænir eru svona óánægðir með kynjakvótann af hverju mótmæltu þau þá ekki listanum sem var settur fram af forystu flokksins?
Er það kannski það að þetta fólk er orðið svo vant því að kvarta yfir öllu að þegar þeim tekst loks að juða saman hóp í ríkisstjórn og eru þar með orðin að stjórnendum þá geta þau ekki vel við unað og gamli kvarttónninn gýs upp.
Þetta er sem sagt fólkið sem á að leiða okkur út úr kreppunni? Fólk sem getur ekki verið sammála í eina viku? Ein vika!!! Hvernig verður þetta eftir eitt ár?
|
Ósátt við kynjaskiptingu í ríkisstjórn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 2. maí 2009
Kristilega siðferðið enn til tals
Þeir sem hafa lesið greinar eftir mig vita vel skoðun mína á svokölluðu "Kristilegu" siðferði. Ég ætla ekki að vera með neina langloku í dag en bendi fólki á Trú og siferði greinarnar mínar hér (grein 1) (grein 2) (grein 3) ef fólk vill lesa meira um heildar siðferðið sem er þar á bæ.
Samt vil ég aðeins minna fólk á þann hluta kristilegs siðferðis sem kemur að þessari frétt.
Það eru rannsóknir sem sýna það svo ekki verður um villst að skírlífsheit virka ekki. Að meðaltali seinka þessi heit hefðbundnu kynlífi um 18 mánuði. Á þessum 18 mánuðum eru stúlkur sem strengja þessi heit sex sinnum líklegri til að veita munnmök og fjórum sinnum líklegri til þess að leyfa endaþarmsmök heldur en stelpur sem strengja engin heit. Þær eru líka töluvert líklegri til þess að stunda óvarið kynlíf þegar loks kemur að kynlífsiðkun.
Eins og ég sagði þá er meira um þetta í lengri greinunum mínum sem ég skora á alla að lesa. Ef þið hinsvegar viljið bara lesa um þennan part kristilegs siðferðis þá dugar ykkur að lesa grein 2.
Svona fólk er ekki góðar fyrirmyndir fyrir börnin okkar og við eigum ekki að gera þeim til geðs að láta svona yfirlýsingar liggja milli hluta.
Takk takk
|
Cyrus skírlíf fram að hjónabandi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Miðvikudagur, 15. apríl 2009
Af hverju er þetta frétt?
Ég veit að maður á að virða eldri borgara sem hafa séð tímana tvenna en kommon.
Af hverju er það svona mikilvægt að kristnir trúi því að Jesú hafi risið upp frá dauðum? Væri ekki nóg að hann hafi kennt fólki að elska hvort annað og að finna guð í sjálfum sér?
Þetta er hlutur sem ég hef aldrei skilið og mun aldrei skilja. Hvers vegna það er svona mikilvægt að hann hafi verið eingetinn, að hann hafi gert kraftaverk og að hann hafi risið upp frá dauðum.
Þetta virðist ekki vera neinn miðpunktur í kenningum hans og hefur engin áhrif á boðskap hans sem slíkan.
Er það virkilega komið þannig fyrir trúarbrögðum í dag að ef það er ekki galdur, hræðsluáróður og afturhald þá fylgir fólk því ekki.
Af hverju eru þá svona margir Búddistar í heiminum?
|
Upprisa Jesú Krists er ekki goðsögn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Fimmtudagur, 2. apríl 2009
Skrattinn hittir ömmu sína nakta á súlu
Mér finnst þetta bara fyndið. Stærsta ruslfæðis apparat í heimi sem líklega ber ábyrgð á milljónum hjartaáfalla, sykursýkistillfella og annara offitutengdra sjúkdóma vill ekki láta tengja sig við nektarstað.
Talsmenn McDonalds segja um brot á höfundarrétti að ræða þar sem bókstafurinn sé of líkur þeirra eigin vörumerki. „Við viljum allavega ekki vera tengdir við nektardansstað," segir einn talsmannanna, Claes Eliasson, í viðtali við AFP fréttastofuna.
Vegna þess að súludans er svo siðlaus miðað við það sem McD gerir.
Þá segi ég einfaldlega að frekar myndi ég eyða minni seinustu krónu í að horfa á túttur frekar en að leggja mér viðbjóðinn frá McD til munns aftur.
6 ár og tel enn.
|
McDonalds mótmælir skilti nektardansstaðar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 30. mars 2009
Spurning um að fact tjékka aðeins
Ég er hissa á að blaðamaður mbl gerði sér ekki ferð á google áður en þessi frétt var skrifuð. Kannski er það ekki skylda að blaðamenn mbl séu yfir höfuð tölvulæsir. En mér finnst það lágmark að þeir séu læsir. Ég giska á að fréttin hafi borist með tölvupóst þannig að eins og fífl ætla ég að gera ráð fyrir að blaðamaðurinn geti valdið því að opna tölvupóstinn sinn. Hvers vegna er honum ókleyft að slá inn nafn konunar á google og grípa td wikipedia hlekkinn um þessa konu. Þar hefði hann fundið meðal annars þetta:
Smith was angrily attacked by the media[4] in March 2009, after a newspaper discovered that she had been claiming expenses to cover the cost of pornographic films.[5] Two films, costing £5 each, were charged to the taxpayer.[6] According to the Telegraph, the two films were "Raw Meat 3" and "By Special Request".[7]
Þá hefði hann td getað farið í heimildarskránna við fréttina (Linkurinn sem er merktur með tölunni 7) sem hefði leitt hann hingað. Þá hefði hann séð að það er ekki bara verið að ráðast á hana út af klámi eiginmannsins. En það er kannski of erfitt. Tók mig heilar 30 sec.
Það tók mig td miklu lengri tíma að læra á tölvupóst en á leitarvélar.
Húrra fyrir mogganum enn á ný.
|
Óvíst um framtíð ráðherra vegna klámmynda |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 25. mars 2009
Gargandi snilld- En hvaða siðferðisspurningu vekur þetta?
Hugsið ykkur.
Það þyrfti aldrei að verða vöntun á blóði framar. Og aldrei nein hætta á sýkingu. Endalaus gleði.
Samt þarf greinarhöfundur að koma með svona bull neðst í fréttina
"Ýmsar siðferðislegar spurningar vakna þegar talað er um að eyðileggja fósturvísa til að búa til stofnfrumur"
Eins og hverjar?
|
Reyna að búa til gerviblóð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Miðvikudagur, 25. mars 2009
Benni kallinn alltaf samur við sig
Það er alveg ótrúlegt að á 21. öld sé ennþá einhver gamall veruleikafyrrtur kall eins valdamikill og páfinn er.
Ég reyndi að segja "Smokkanotkun gerir illt verra í útbreiðslu eyðni" án þess hika, blikka eða flissa. Það tókst ekki. Enda er það algjör vitleysa.
Takið eftir að meira en helmingur er "algerlega ósammála" honum. Sem þýðir að það var fólk sem var "frekar ósammála" honum sem var ekki talið með. Ætli það hljómi bara svona illa fyrir kredduliðinu ef það yrði sagt að 80% ítala hefðu verið í "frekar" "mjög" og "algerlega" ósammála dálknum?
Og skemmtilegt að vita að fóstureyðingar eru mjög tíðar í höfuðvígi kaþólsku kirkjunar. Ég giska(Og held ég geti nokkurnvegin slegið því föstu) að unglinga ólétta, kynsjúkdómar og aðrir fylgifiskar trúardogma* séu á hærra stigi þar en í trúlausari löndum.
Maður veit þó aldrei. Kannski er allt í góðu í Bennabæ.
Me thinks not.
*Sjá hér
|
Ítalir ósammála páfa um smokkinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 6. mars 2009
Joop og Heidi
Þetta kemur upp ef maður leitar aðeins um þessa frétt.
In February 2009, Joop came under fire after declaring his opinion that German supermodel Heidi Klum is too "fat" for the runway.[1] Klum's publicist released a statement shortly thereafter saying that "Wolfgang is obviously trying to revive his sagging career and get press for himself by riding Heidi's coattails." Heidi Klum's friend, Tim Gunn, also jumped to his friend's aid stating that "it's totally ridiculous. [Heidi] is a very sensitive soul, and it's very troubling to her. If she's fat, other women should throw themselves off a train. I can wrap my hand around her bicep."
Joop má halda að Heidi sé lítil og feit. Við vitum betur.
|
Neitar því að vera of feit |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sannleikur er sannleikur þar til þú skipuleggur hann
Spurt er
Tónlistarspilari
Tenglar
Meistarar
Síður meistara nútímans
Bloggvinir
-
totally
-
gudjonbergmann
-
snepill
-
loopman
-
finnurb
-
bragir
-
tryggvie
-
godpool
-
gummiarnar
-
kiza
-
sleepless
-
apalsson
-
stormsker
-
johannavala
-
hofyan
-
maggadora
-
birtabeib
-
annalilja
-
pallgeir
-
maggy78
-
gudrunj
-
robertb
-
predikarinn
-
jarnskvisan
-
evathor
-
audureva
-
bryn-dis
-
toshiki
-
margretjonasar
-
elly
-
hoax
-
sigvardur
-
monsdesigns
-
freyrholm
-
madddy
-
fatou
-
heidathord
-
jonaa
-
hallarut
-
aslaugosk
-
austurlandaegill
-
truryni
-
annaragna
-
what
-
hugs
-
huldumenn
-
taraji
-
einarhardarson
-
bloggid
-
brandarar
-
semaspeaks
-
nanna
-
jevbmaack
-
manisvans
-
gattin
-
drum
-
nytjagardar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 30010
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


